Grænás 3a
260 Njarðvík
- Tegund Fjölbýli/ Fjölbýlishús með sameiginlegum inngangi.
- Stærð 109 fm
- Stofur 1
- Herbergi 4
- Svefnherbergi 3
- Baðherbergi 1
- Inngangur Sameig.
- Byggingaár 1957
- Brunabótamat 45.200.000
- Fasteignamat 41.250.000
Lýsing
Opið hús: Grænás 3a, 260 Reykjanesbær, Íbúð merkt: 01 01 04. Eignin verður sýnd mánudaginn 9. september 2024 milli kl. 18:00 og kl. 18:30. Palli verður á staðnum
ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu flotta íbúð á jarðhæð við Grænás 3, 260 Reykjanesbær, nánar tiltekið eign merkt 01-04, birt stærð 109.2 fm.
*Þak endurnýjað 2021.
*Húsið var sprungufyllt og málað 2021.
Nánari upplýsingar veitir/veita:
Elín Frímanns Löggiltur fasteignasali, í síma 8674885, tölvupóstur [email protected]
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 698-6655, tölvupóstur [email protected].
Nánari lýsing:
Forstofa/hol flísalagt með skáp.
Stofa er rúmgóð og björt með útgengi á pall úr sólskála. Flísar á sólskála og parket á stofu. Góður möguleiki að afstúka herbergi þar.
Eldhús er flísalagt með stórri innréttingu og tengi fyrir þvottavél inní góðum skáp.
Hjónaherbergi er parketlagt.
Barnaherbergi er parketlagt með skáp. Þetta voru 2 herbergi áður. Hægt að breyta til baka.
Baðherbergi með innréttingu, flísalagt í hólf og gólf, bað með sturtu og handklæða ofn.
Geymsla er innan íbúðar með skáp.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 59.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.