Smiðjuvellir 46
230 Keflavík
- Tegund Atvinnuhús/ Lager - Iðnaðarhúsnæði
- Stærð 38 fm
- Stofur 0
- Herbergi 0
- Svefnherbergi 0
- Baðherbergi 0
- Inngangur Sér
- Byggingaár 2023
- Brunabótamat 13.950.000
- Fasteignamat 10.250.000
Lýsing
Smiðjuvellir 46, 230 Reykjanesbær, birt stærð 38.0 fm Ásamt 18 fm millilofti sem skilast með stiga upp. Til viðbótar er hurðaopnari með fjarstýringu. Gott geymslu og athafnabil byggt 2023 með millilofti. Frábær staðsetning og vinsæl geymslubil.
Nánari upplýsingar veita:
Páll Þorbjörnsson Löggiltur fasteignasali, í síma 560-5501, tölvupóstur [email protected]
Sigurjón Rúnarsson nemi til löggildingar fasteignasala í síma 771-9820, töluvpóstur [email protected]
Raflagnir utanhúss er með LED lýsing. Útilýsingu er stýrt með sólúri í aðaltöflu. Lagnir: Öll inntök / mælagrindur fyrir hvern matshluta eru í sameiginlegum inntaksrýmum. Inntaksrýmin eru aðskilin fyrir aðaltöflu annarsvegar og heitt og kalt neysluvatn, hinsvegar. Blinduð tengi fyrir neysluvatn eru aðgengileg og er upphitað með hitaveituofnum. Hitaveita er sameiginleg fyrir öll geymslurýmin og er húsnæðið hitað upp með hefðbundnu ofnakerfi. Varmaskiptir er við inntak heita neysluvatnsins. Möguleiki að setja upp salernisaðstöðu.
Innkeirsluhurð 2,5m x 3,0m með mótor.
Lóð: Bílastæði eru fullfrágengin með malbikslögn. Steinsteypt sorptunnugerði fyrir tvo framhlaðna gáma verður komið upp innan lóðar skv skilalýsingu framkvæmdaraðila. Veggir og gólf utan um gáma verði steinsteypt.
Stofnað hefur verið húsfélag sem sér um rekstur á sameiginlegri lóð og öryggiskerfi. Lóð er afgirt með galvaniseraðri öryggisgirðingu. Komið verður fyrir fjarstýrðu hliði sem hindrar aðkomu óviðkomandi inná lóð.
Sett verða upp 3 stk læsanleg göngu-hlið á öryggisgirðingu af byggingaraðila. Sett hefur verður upp myndavélakerfi sem rekið er af húsfélagi í sameign allra eignahluta á svæðinu. Greiðsla húsgjalda er 6000 kr og staða húsfélags er um 700.000 kr.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 59.440 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.