Guðnýjarbraut 17
260 Njarðvík
- Tegund Einbýli/ Einbýlishús á einni hæð
- Stærð 214 fm
- Stofur 1
- Herbergi 5
- Svefnherbergi 4
- Baðherbergi 2
- Inngangur Sér
- Byggingaár 2008
- Brunabótamat 98.650.000
- Fasteignamat 85.550.000
Lýsing
Íbúðarhlutinn er 174,5 fm og bílskúr er 40 fm samtals 214,5 fm. Lóð frágengin og með tveimur sólpöllum. Bílaplan er hellulagt með öflugri snjóbræðslu. Einnig er snjóbræðsla í gönguleiðum við hús. Eignin er öll flísalögð með gólfhita.
Mjög góð staðsetning í rólegri og lokaðri götu þar sem er stutt í grunnskóla, leikskóla og út á Reykjanesbrautina. Falleg gönguleið með fram sjónum er stutt frá.
Allar nánari upplýsingar veita
Páll Þorbjörnsson lgf í síma 560-5501 og á [email protected]
Sigurjón Rúnarsson aðstoðarmaður fasteignasala í síma í síma 771-9820 og á [email protected].
Stutt lýsing: Forstofa, sjónvarpshol, tvö 12.5 fm svefnherbergi (auðvelt að bæta þriðja barnaherberginu við), hjónaherbergi með fataherbergi og sér salerni, stofa með hátt til lofts, eldhús með innréttingum úr Hnotu, baðherbergi með walk in sturtu og baðkari, tveir sólpallar, upphitað bílaplan og frágengin lóð.
Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi. Við forstofu eru tvö rúmgóð barnaherbergi ásamt sjónvarpsherbergi. Auðvelt að loka sjónvarpsrýminu með léttum vegg og vera þá með þrjú barnaherbergi. Öll eignin er flísalögð og vönduð.
Stofa er rúmgóð með góðri lofthæð og í opnu rými með eldhúsi. Flísar á gólfi og eru tveir útgangar á sitthvorn sólpallinn annar í suður og hinn í suðvestur. Stærri pallurinn er mjög sólríkur, steyptir skjólveggir með vönduðu dekki.
Eldhús er rúmgott og opið. Vönduð sérsmíðuð innrétting, mosaic flísar á borðplötu. Eyja með barborði. Innbyggður örbylgjuofn og ofn.
Hjónaherbergi er rúmgott með flísum á gólfi, 5 fm fataherbergi með glugga ásamt 4 fm salerni. Útgengt er á suðvestursólpall.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum. Sérsmíðuð innrétting úr hnotu, mosaic flísar á hluta veggjum. bæði baðkar og sturta, upphengt salerni. Útgengt á suðvestursólpall úr baðherbergi.
Þvottahús er á milli íbúðar og bílskúrs ásamt geymslu. Sprautulakkaðar sérsmíðuð innrétting þ.s tæki eru í vinnuhæð. Flísar á gólfi.
Bílskúr er 40fm og með flísum á gólfi.
Lóð er fullkláruð, tyrfð, góðir sólpallar, aðkoma góð með oflugri snjóbræðslu. Steypt tvöfallt russlatunnuskýli.
Glæsileg eign á fjölskylduvænum og fallegum stað í Innri Njarðvík. Ekkert hefur verið til sparað við innréttingu á eigninni.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:
Páll Þorbjörnsson
löggiltur fasteignasali
[email protected]
560-5501
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
- Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ
- Víkurbraut 62, 240 Grindavík
- Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
- Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
- Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.500.
- Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
- Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir, er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.