Guðrúnartún 1
850 Hella
- Tegund Lóð/ Byggingarlóð
- Stærð 0 fm
- Stofur 1
- Herbergi 3
- Svefnherbergi 2
- Baðherbergi 1
- Inngangur Sér
- Byggingaár 0
- Brunabótamat 0
- Fasteignamat 3.510.000
Lýsing
Guðrúnartún 1, 850 Hella, nánar tiltekið raðhús í byggingu að Guðrúnartúni 1 á Hellu í Rangárþingi ytra með fjórum raðhúsaíbúðum.
Guðrúnartún 1a, 1b, 1c, 1d.
Guðrúnartún 1 er 3-4ja herbergja íbúðir í 4ja íbúða raðhúsi á einni hæð sem er í byggingu. Birt stærð hverrar eignar er 99,0 m2.
Í íbúðunum er gert ráð fyrir rúmgóðu anddyri með skápum, tveimur rúmgóðum svefnherbergjum, eldhúsi og stofu/borðstofu í rúmgóðu opnu rými, baðherbergi, þvottahúsi og geymslu.
Burðarvirki hússins er úr timbri. Útveggir eru klæddir að utan með ljósri báruklæðningu og timburklæðningu í bland.
Íbúðirnar eru afhentar fokheldar á byggingarstigi 4, lóð og bílaplan grófjöfnuð og húsið tilbúið að utan.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald (0,3% af endanlegu brunabótamati) þegar það verður lagt á.
Seljandi greiðir tengigjöld rafmagns og hita sem og lóðargjald.
Afhending eftir samkomulagi.
Guðrúnartún 1a og 1d, endaraðhús
Ásett verð kr. 29.900.000 - Fokhelt.
Guðrúnartún 1b og 1c, miðjuraðhús.
Ásett verð kr. 28.900.000 - Fokhelt.
Nánari upplýsingar veita:
Bjarklind Þór Löggiltur fasteignasali, í síma 6905123, tölvupóstur [email protected].
Kristinn Sigurbjörnsson fasteignasali, í síma 5605502, tölvupóstur [email protected].
Íbúðirnar eru bjartar og rúmgóðar á einni hæð og afhendast fokheldar á byggingarstigi 4. Staðsettar innst í bænum á friðsælum stað með útsýni til Rangá.
Útveggir:
Útveggir eru timburveggir, einangraðir með 150mm þéttull. Veggir eru klæddir að utan með ljósri báruklæðningu og timburklæðningu í bland. Að innan eru veggir klæddir með gifsklæðningu.
Þak:
Þak er timburþak, byggt upp með kraftsperrum. Borðaklæðning, þakpappi og ysta klæðning er aluzink báruklæðning. Loft er neðan í sperrum að innan og klætt að neðan með sléttri gifsklæðningu. Þakkantur er ljós að lit og þakhalli er 18°.
Gluggar og hurðir:
Gluggar og hurðir eru timburgluggar, hvítir/ljósir að lit.
Gólf:
Botnplata er járnbent steinsteypa, staðsteypt á burðarhæfa grús.
Innveggir og innihurðir:
Léttir veggir eru gifsveggir. Allar innihurðir skulu vera með 80cm hindrunarlausri umferðarbreidd og hæð upp á 200cm.
Sorp:
Sorptunnuskýli eru fyrir hverja íbúð. Gert er ráð fyrir þremur sorptunnum fyrir hverja íbúð m.t.t. flokkunar á sorpi. Sorptunnuskýli eru staðsett við bílastæði am.k. 3m frá húsi.
Eldvarnir:
Eldvarnarveggur milli íbúða skal vera EI-90 tvöfaldur 2* 70*45mm timburgrind (veggur) með 70mm steinullareinangrun sem er fest með vír skv. leiðbeiningarblaði HMS. Eldvarnarveggir eru klæddir með tvöföldu gifsi hvoru megin.
Eldvarnarveggur milli íbúðar og bílskúrs skal vera EI-60 byggður upp með 45x95mm timburstoðum og klæddur með gifsklæðningu sem ysta lagi. Fyrir innan gifsklæðningu má klæða með spóna- eða krossviðsplötum.
Hver íbúð er sjálfstætt brunahólf. Klæðningar í bílgeysmlu skulu vera í fl. 1. Reykskynjarar skulu samtengdir innan íbúðar. Setja skal upp handslökkvitæki í samræmi við leiðbeiningar eldvarnareftirlits.
Lóð:
Bílastæði og lóð afhendist grófjafnað. Bílastæði eru 2 á hverja íbúð eða samtals 8 talsins.
Lagnir og lagnaleiðir:
Lagnainntök eru í þvottahúsi í hverri íbúð. Upphitun er hitaveita. Hitakerfi er ísteyptur gólfhiti. Neysluvatnslagnir eru almennt ísteyptar rör í rör kerfi og einnig í innveggjum þar sem það á við.
Raflagnir eru í raflagnagrind útveggja og innveggjagrindum. Loftræsting lokaðra rýma skal vera með vélrænni loftræstingu um þak eða gegnum útveggi.
Algild hönnun:
Íbúðum er auðvelt að breyta m.t.t. aðgengis og skv. þörfum hreyfihamlaðra og sjónskertra. Minnstu breytinguna þyrfti að gera á miðjuíbúð. Þröskuldar hurða eru lágir og miðað er við að innihurðir séu almennt þröskuldslausar. Aðkoma inn í íbúðir um aðalhurð er hægt að útbúa með rampi. Baðherbergi ná lágmarksstærð og er miðað við innfellda sturtu.
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:
Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.