ALLT fasteignasala kynnir í einkasölu:
3 herbergja kjallara íbúð við Kirkjuveg 41, 230 Reykjanesbær. Stærð 64.5 fm.Nánari upplýsingar veitir:
Dísa Edwards lgf. á [email protected].* 3ja herbergja kjallar íbúð með sér inngangi
* Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í íbúðinni. Parket á gólfi og skápur í báðum herbergjum
* Eldhús og stofa eru í opnu og björtu samliggjandi rými. Eldhús hefur hvíta innréttingu með dökkri borðplötu. Parket á gólfi.
* Flísalagt baðherbergi í hólf og gólf með hvítri innréttingu, salerni, handklæða ofn og baðkari.
* Rúmgott þvottahús er sameiginlegt með efri hæð.
ATH: Eign sem þarf töluvert viðhald og hentar einstaklega vel fyrir laghenta. Nánari upplýsingar veitir:
Dísa Edwards lgf. [email protected]Vegna eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu. ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum:Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ - Víkurbraut 62, 240 Grindavík - Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Kostnaður kaupanda:1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 2.700.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.