ALLT FASTEIGNASALA kynnir í einkasölu:
Fallegt, parhús á eftirsóttum stað í Garði, Suðurnesjabæ. Eignin er skráð 135.2 fm. Forstofa, beykiskápar í forstofuholi. Bjart, opið miðrými, þar er stofa, borðstofa og eldhús með eyju. Útgengt er út á góðan sólpall frá eldhúsi. Tvö rúmgóð svefnherbergi, rúmgott baðherbergi með sturtu. Gott þvottahús. Bílskúr með geymslu inn af. Hiti í gólfum. Fallegur gróðurmikill garður.
Falleg eign á frábærum stað, steinsnar frá grunnskóla, leiksskóla, íþróttahúsi, sundlaug og fallegri náttúru.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veita:
Unnur Svava Sverrisdóttir löggiltur fasteignasali á [email protected]
Elínborg Ósk Jensdóttir löggiltur fasteignasali á [email protected] eða í 8231334
Nánari lýsing:
Komið er inn í bjarta forstofu með flísum á gólfi, klæðaskápur í holi gegnt forstofu.
Eldhús: hefur fallega beyki innréttingu með eyju. Útgengt á sólpall
Borðastofa og stofa: eru opnar við eldhús. Margir gluggar.
Baðherbergi: Er rúmgott, flísalagt, sturta, upphengt salerni og baðinnrétting.
Svefnherbergi: Tvö svefnherbergi, beyki klæðaskápur í hjónaherbergi, sérlega björt herbergi.
Þvottahús: Með
innréttingu undir þvottavél og þurrkara og gott geymslupláss.
Pallur: Pallur með skjólveggjum, góð innkeyrsla og fallegur garður
** EIGN SEM VERT ER AÐ SKOÐA **Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamning - 0.8 % af heildar fasteignamati, 0,4% við fyrstu kaup og fyrir lögaðila 1,6% af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingar gjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fleira 2.500 kr af hverju skjali.
3. Lántöku kostnaður lánastofnunar – fer eftir lánastofnun hverju sinni.
4. Umsýslu gjald til fasteignasölu samkvæmt kauptilboði.
Fasteignakaupalög nr. 40/2002 leggja ríka skoðunarskyldu á kaupendur. Við brýnum því fyrir kaupendum að skoða fasteignir vel fyrir tilboðsgerð og leita sér viðeigandi aðstoðar sérfræðinga þegar ástæða þykir til.