Allt fasteignasala kynnir í einkasölu fallega og rúmgóða
4ra herbergja íbúð á fyrstu hæð í góðu fjölbýli við Grænásbraut 1216, Ásbrú Reykjanesbæ.
Samkvæmt Þjóðskrá Íslands er eignin
145 fm, þar af geymsla
4,5 fm.
Frábær fjölskyldueign sem vert er að skoða. - Stutt í leikvöll og opið svæði.
- Möguleiki á að bæta við fjórða herberginu
- Húsið var heilmálað að utan árið 2019.
- Íbúð var heilmáluð að innan og skipt um gólfefni á alrými og herbergjum (parket) 2020.
- Gluggar íbúðarinnar voru málaðir að utan árið 2020 (stofugluggar og svalahurð) og 2022 (eldhús- og herbergisgluggar).
- Stutt í alla þjónustu, leik- og grunnskóla.
- Fasteignamat eignarinnar 2023 er 39.1 mkr
- Frábær fjölskyldueign
Bókið einkaskoðun!
Nánari lýsing:
Forstofa með góðum skáp og parketi á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu. Tengi fyrir uppþvottavél. Gott skápa- og vinnupláss. Eldhús er rúmgott og hægt að hafa góðan borðkrók þar. Parket á gólfi.
Stofan er mjög björt og rúmgóð. Þaðan er útgengt á svalir. Parket á gólfi.
Baðherbergi 1 er með innréttingu og speglaskáp, salerni og baðkari með sturtu. Dúkur á gólfi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðu skápaplássi. Parket á gólfi. Inn af hjónaherbergi er baðherbergi með innréttingu, speglaskáp, salerni og stórri sturtu. Dúkur á gólfi.
Herbergi 1&2 eru rúmgóð með góðum skápum. Parket á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar með tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Hillur eru til staðar. Dúkur á gólfi.
Geymsla 1 er innan íbúðar í forstofu, er mjög rúmgóð með dúk á gólfi.
Geymsla 2 er í sameign fyrir utan íbúð.
Nánari upplýsingar og skoðunarbókanir veitir:Elín Frímannsdóttir
Aðstoðarmaður fasteignasala [email protected]560-5521 / 867-4885
Páll Þorbjörnsson
löggiltur fasteignasali [email protected]560-5501
ALLT fasteignasala er staðsett á eftirfarandi stöðum: Hafnargötu 91, 230 Reykjanesbæ
Víkurbraut 62, 240 Grindavík
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ Kostnaður kaupanda: Af gjaldskyldum skjölum skal greiða
0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
Þinglýsingargjald á hvert skjal er
kr. 2.500. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
Umsýslugjald til ALLT fasteignasölu er kr. 50.000 auk vsk. Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. ALLT fasteignasala vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir, er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak